Sveitarfélögin fimm á Snæfellsnesi hlutu nýverið umhverfisvottun EarthCheck á starfsemi sína. Er það í ellefta skiptið sem sveitarfélögin hljóta slíka vottun. Snæfellingar halda því áfram að vera leiðandi samfélag í úrbótum í umhverfis- og samfélagsmálum.

Sveitarfélögin á Snæfellsnesi tóku sameiginlega ákvörðun um aldamótin að standa vörð um umhverfið.
Þau hófu umbætur í starfsemi sinni og miðluðu fræðslu til íbúa. Árið 2003 fór af stað umfangsmikil undirbúningsvinna að umhverfisvottun EarthCheck samtakanna fyrir lausnamiðað starf og sjálfbærari frammistöðu í umhverfis- og samfélagsmálum. Vottunina hlaut Snæfellsnes svo í fyrsta skipti í júní 2008, fyrst allra samfélaga í Evrópu og vakti áfanginn verðskuldaða athygli innan lands sem utan.

Að fá alþjóðlega umhverfisvottun er staðfesting á því að sveitarfélögin fimm leitist við að hafa græn gildi að leiðarljósi í allri sinni starfsemi og lágmarka neikvæð umhverfisáhrif af henni. Íbúar og stofnanir sveitarfélaganna eiga heiðurinn sérstaklega skilið þar sem árangurinn er þeirra.

Ferlið er umfangsmikið og felst helsta áskorunin í því að innleiða sjálfbærnistefnu sveitarfélaganna í alla starfsemi, hafa eftirlit með auðlindanotkun og vinna að úrbótum þar sem unnt er að gera betur. Árlega er svæðið og frammistaða sveitarfélaganna tekin út af óháðum aðila vegna endurnýjunar á vottun. Þá er farið yfir hvort gögn og starfsemi sveitarfélaganna uppfylli skilyrði endurnýjaðrar vottunar en kröfurnar sem uppfylla þarf aukast með ári hverju. Því er mikilvægt að halda góðu verki áfram og vinna stöðugt að úrbótum í átt til sjálfbærari starfsemi sveitarfélaganna fyrir okkur og komandi kynslóðir.

Hér er hægt að kynna sér betur umhverfisvottun Snæfellsness