Nýlega var gerð netkönnun meðal íbúa í tengslum við hugsanlega sameiningu sveitarfélaganna. Þar var m.a. spurt um afstöðu íbúa til þjónustu sveitarfélaganna í dag og hvaða áhrif möguleg sameining gæti haft á þjónustuna til framtíðar. Þátttaka í netkönnuninni var góð, en alls bárust svör frá 381 þátttakanda.


Þessi netkönnun var fyrsti hluti sviðsmyndagreiningar sem fer fram síðla sumars. Megintilgangur þessarar vinnu er að horfa til framtíðar og greina hvernig samfélag og þjónustu íbúarnir vilja búa í til lengri tíma litið.
Þannig verða dregnir fram kostir og gallar sameiningar með aðstoð íbúa og fulltrúum sveitarstjórnanna þriggja. Á íbúafundum í byrjun september verða niðurstöður netkönnunarinnar rýndar og sviðsmyndir samfélagsins ársins 2030 fullmótaðar. Markmiðið með sviðsmyndavinnunni er að meta kosti og galla sameiningar sveitarfélaganna miðað við stöðuna í dag og ekki síður að skoða stöðu þeirra í framtíðinni í takt við auknar kröfur íbúa og stjórnvalda til sveitarfélaga.


Í haust verða síðan niðurstöður sviðsmyndavinnunnar, ásamt ýtarlegum greiningum á málaflokkum og fjárhagslegum áhrifum sveitarfélaganna, kynnt íbúum.

Kærar kveðjur,

Fulltrúar sameiningarnefndar sveitarfélaganna þriggja.