Næsta námskeið í félagsmálafræðslu verður haldið á Grundarfirði dagana 3.-4. desember. Námskeiðið hefst klukkan 18:00 og stendur til 22:00 báða dagana. Allir velkomnir.

Ungmennafélag Íslands í samvinnu við Bændasamtök Íslands og Kvenfélagasamband Íslands standa fyrir félagsmálafræðslu um land allt í vetur undir yfirskriftinni ,,Sýndu hvað í þér býr.“ Hlutverk námskeiðsins er sjá félagsmönnum fyrir fræðslu í ræðumennsku og fundarsköpum. Námskeiðsgjald er 5000 kr. 

Áhugasömum er einnig bent á að afla sér frekari upplýsingar um verkefnið  hjá Guðrúnu Snorradóttur landsfulltrúa UMFÍ í síma 848-5917 og á gudrun@umfi.isog  Sigurði í síma 861-3379 og á sigurdur@umfi.is