Atvinnuvega- og samfélagssýningin „Heimurinn okkar“ verður haldin í Grundarfirði nk. laugardag 19. mars. Það er FAG, félag atvinnulífsins í Grundarfirði sem stendur fyrir sýningunni. Þegar Skessuhorn ræddi við Jónas Víði Guðmundsson markaðsfulltrúa Grundarfjarðar í gær var sýnt að þátttaka yrði góð á sýningunni. Um 40 aðilar höfðu þá fest sér sýningarbás, þar af 21 fyrirtæki og stofnanir og 15 félagasamtök, fyrir utan svokallaða aðra aðila, en þeir eru m.a. Fjölbrautaskóli Snæfellinga sem verður með stóran kynningarbás og aðstandendur sýningarinnar, FAG, en það félag var stofnað árið 1997. 

Sýningin verður einmitt haldin í húsnæði Fjölbrautaskóla Snæfellinga og þegar Skessuhorn ræddi við Jónas var hann ásamt Ólafi Tryggvasyni húsverði að skipuleggja sýningarbásana. Aðspurður sagði Jónas að væntanlega yrði ekki stórmál að koma básunum fyrir í stórum sal skólans og vonandi myndi fjöldi gesta koma á sýninguna, sem án efa verður stórskemmtileg. Félags atvinnulífsins í Grundarfirði stendur straum af kostnaði við sýninguna og eru kynningarbásar þátttakendum að kostnaðarlausu.  Sýningin hefst um hádegisbil á laugardaginn.