Vasco Da Gama í Grundarfjarðarhöfn 28. október 2025 - Ljósmynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Vasco Da Gama í Grundarfjarðarhöfn 28. október 2025 - Ljósmynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Tekjur af skemmtiferðaskipum lækka um 22%

 
Birkir Jón Jónsson bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar skorar á Alþingi að leiðrétta kúrsinn í skattlagningu skemmtiferðaskipa og skapa greininni stöðugra og fyrirsjáanlegra rekstrarumhverfi.
 
Tekjur Grundarfjarðarhafnar af skemmtiferðaskipum námu um 100 m.kr. árið 2026 og lækkuðu um 22% frá fyrra ári. Farþegum fækkaði um 32% milli ára. Miðað við núverandi bókunarstöðu stefnir í að tekjur hafnarinnar af skemmtiferðaskipum lækki um 15% til viðbótar árið 2027. Þá hafa breytingar á skatta- og gjaldaumhverfi skemmtiferðaskipa haft áhrif á bókanir, en alls hafa 52 afbókanir verið skráðar fyrir árin 2025–2027 sem rekja má til nýrrar gjaldtöku.
 
Tekjur og fjöldi farþega
 
Á landsvísu lækkuðu tekjur hafna og sveitarfélaga af skemmtiferðaskipum um 10% milli ára, eða um 448 m.kr., samkvæmt samantekt Cruise Iceland.
 

52 afbókanir vegna nýrrar gjaldtöku

Breytingar á skatta- og gjaldaumhverfi skemmtiferðaskipa hafa þegar haft áhrif á bókanir hjá Grundarfjarðarhöfn. Afbókanir sem rekja má til nýrrar gjaldtöku dreifast þannig:
 
Afbókanir skemmtiferðaskipa
 
 
Afbókanirnar hafa bein áhrif á tekjur Grundarfjarðarhafnar og þau umsvif sem fylgja komu skemmtiferðaskipa til Grundarfjarðar og Snæfellsness. Áhrifin einskorðast því ekki við rekstur hafnarinnar heldur ná einnig til ferðaþjónustu og annarrar atvinnustarfsemi á svæðinu.

Þróunin kallar á endurmat

Reynslan sýnir nú með skýrum hætti að aukin skattheimta og ófyrirsjáanlegar breytingar á rekstrarumhverfi skemmtiferðaskipa hafa haft áhrif á eftirspurn og leitt til samdráttar í skipakomum. Afleiðingin er ekki aðeins minni umsvif í höfnum og ferðaþjónustu, heldur einnig lægri tekjur hafna og sveitarfélaga og þrengri skattstofn en ella.
Grundarfjarðarbær telur því mikilvægt að Alþingi taki þróunina til skoðunar og meti heildaráhrif þeirra breytinga sem gerðar hafa verið. Markmiðið hlýtur að vera skatta- og gjaldaumhverfi sem skilar samfélaginu sanngjörnum tekjum án þess að draga úr samkeppnishæfni Íslands sem áfangastaðar eða veikja þær tekjur og störf sem greinin skapar um land allt.

Skattaumhverfið hefur áhrif á leiðangursskipin

Breytingar á skatta- og rekstrarumhverfi leiðangursskipa hafa haft veruleg áhrif á innanlandssiglingar þeirra. Gögn Cruise Iceland sýna mikinn samdrátt milli ársins 2025 og bókunarstöðu fyrir árið 2027.
 
 
Leiðangursskip
 
Fækkunin hefur sérstaklega áhrif á minni hafnir, þar sem leiðangursskip hafa verið mikilvægur hluti af umferðinni. Cruise Iceland tengir þróunina við virðisaukaskatt á hringsiglingar og breytingar á rekstrarumhverfi leiðangursskipa.

Áhrifin ná út fyrir Grundarfjörð

Greining Teya á kortaveltu sumarið 2026 sýnir að um 70% af þeirri viðbótarveltu sem tengist skipakomum til Grundarfjarðar verður utan bæjarins. Fækkun skemmtiferðaskipafarþega getur því haft áhrif á ferðaþjónustu og atvinnulíf víðar á Snæfellsnesi. 
 

Koma skemmtiferðaskipa hefur haft gríðarleg jákvæð áhrif á landsbyggðina og gert þeim kleift að halda úti sjálfbærari rekstur hafnarsjóða og atvinnulífs. Tækifæri til sjálfbærni í rekstri atvinnulífs eru færri því fjær sem maður fer frá höfuðborgarsvæðinu – þar hafa komur skemmtiferðaskipa skipt gríðarlega miklu máli sem mikilvægt lóð í að tryggja lífsafkomu með sjálfbærum hætti.

„Við erum ekki að kalla eftir því að greinin standi utan eðlilegrar skattheimtu. Hins vegar verðum við að horfa á raunveruleg áhrif þegar breytingar leiða til þess að skipum og farþegum fækkar. Það skiptir miklu að skattheimta og gjaldtaka sé fyrirsjáanleg og að breytingar séu innleiddar með þeim hætti að greinin geti brugðist við og lagað sig að þeim. Fyrir lítið samfélag eins og Grundarfjörð munar verulega um þessi umsvif og áhrifin ná langt út fyrir okkar sveitarfélag. Við hvetjum Alþingi því til að leiðrétta kúrsinn og tryggja stöðugt og samkeppnishæft umhverfi til framtíðar,“ segir Birkir Jón Jónsson, bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar.