Joy Higginson kom til Grundarfjarðar með skemmtiferðaskipinum Funchal 16. júní sl. Eins og endranær tóku leikskólabörn á móti farþegum með söng á höfninni. Umræddur farþegi var svo ánægður með móttökurnar að hann sendi kort, annars vegar til starfsfólks leikskólans og hins vegar til barnanna, þar sem hann þakkaði fyrir sig.

Það er greinilegt að Grundarfjörður er farþegum skemmtiferðaskipanna, sem hingað koma, mjög minnisstæður og mega leikskólabörn svo sannarlega vera ánægð með sitt framtak við móttöku skemmtiferðaskipa.