Þemadagar voru í tónlistarskólanum sl. miðvikudag og fimmtudag. Þemað að þessu sinni var afrísk tónlist og unnið var sérstaklega með tvö þjóðlög.

Fyrri daginn var unnið í hópum þar sem hvert hljóðfæri var tekið sérstaklega fyrir, en seinni daginn var svo „Risa-samspil“ þar sem allir nemendur æfðu og fluttu lögin saman á hin ýmsu hljóðfæri.