Auglýsing um kjörfund í Grundarfjarðarbæ

vegna þjóðaratkvæðagreiðslu þann 6. mars 2010

 

Þjóðaratkvæðagreiðsla verður laugardaginn 6. mars 2010 skv. ákvæðum laga nr. 4/2010.

 

Kjörfundur í Grundarfjarðarbæ hefst kl. 10.00 og honum lýkur kl. 22.00 laugardaginn 6. mars 2010.

 

Kosið verður í einni kjördeild í Grunnskóla Grundarfjarðar.

 

Framvísa ber persónuskilríkjum á kjörstað ef kjörstjórn fer fram á það.

 

Kjörstjórn Grundarfjarðarbæjar.

 

Nánari upplýsingar um þjóðaratkvæðagreiðsluna er að finna á: http://www.thjodaratkvaedi.is/