- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Í dag, 11. nóvember, fagna Pólverjar þjóðhátíðardegi sínum, Narodowe Święto Niepodległości. Í ár eru 108 ár liðin frá því Pólland endurheimti sjálfstæði sitt árið 1918.
Dagurinn hefur sérstaka skírskotun hér í Grundarfirði, hér er stórt og öflugt pólskt samfélag sem er mikilvægur hluti af samfélaginu okkar. Það eru 158 einstaklingar með lögheimili í Grundarfirði sem eru með pólskt ríkisfang.
Grundarfjarðarbær óskar pólskum íbúum sveitarfélagsins innilega til hamingju með daginn.