Grundarfjarðarbær setti í loftið nýjan bæjarvef um miðjan mars sl. Hluti af nýjungum vefsins var að hafa sérstakan vettvang eða svæði til að kynna fyrirtækin í bænum, ef þau vildu nýta sér það, nokkurs konar “gular síður”, sem vefhönnuðir útbjuggu fyrir bæinn, sjá nánar hér: www.grundarfjordur.is/is/mannlif/atvinnulif/thjonusta-i-grundarfirdi 

Fyrirtækjum í Grundarfirði býðst nú að koma upplýsingum um sitt fyrirtæki inná gulu síðurnar og höfum við einnig tekið mið af samtali sem bæjarfulltrúar áttu með fulltrúum ferðaþjónustufyrirtækja seinnihlutann í apríl sl. 

Hægt er að skrá sitt fyrirtæki með því að fara inn á eftirfarandi vefslóð, þar sem settar eru inn helstu upplýsingar um fyrirtækið ásamt kennimerki (lógó), hér:

www.grundarfjordur.is/is/mannlif/atvinnulif/upplysingar-um-fyrirtaeki

Með þessu framtaki viljum við styðja við fyrirtæki og þjónustu í bænum, m.a.:

  • Auka sýnileika þeirra
  • Auðvelda leit að þjónustu í bænum fyrir bæjarbúa sem og utanaðkomandi
  • Aðstoða þau fyrirtæki sem vilja vera sýnilegri fyrir mögulegum fjárfestum eða samstarfsaðilum
  • Gera fyrirtækin vænlegri til leitar á netinu, m.a. á leitarvélum

Fyrir nánari upplýsingar og aðstoð, eða ef þú hefur ábendingar um eitthvað sem betur má fara, endilega hafið samband við Christinu Degener á netfangið christina@grundarfjordur.is