Grundarfjarðarbær auglýsir laust til umsóknar ca. 75% starf við afleysingu þjónustufulltrúa bæjarskrifstofu í fjórar vikur, frá 27. maí - 20.  júní 2024. Þjónustufulltrúi hefur m.a. umsjón með skráningu í skjalakerfi bæjarins, skráningu reikninga, m.a. rafrænna, annast innkaup, símsvörun og svörun ýmissa erinda. Þjónustufulltrúi semur og færir fréttir á vef bæjarins, annast þjónustu við viðskiptavini og annað sem yfirmaður felur honum.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Þekking og reynsla af skjalastjórnun er kostur
  • Góð íslensku- tölvukunnátta er skilyrði
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi er skilyrði
  • Jákvæðni, sveigjanleiki og góðir samstarfshæfileikar eru skilyrði
  • Nákvæmni og skipuleg vinnubrögð
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur

Laun og starfskjör fara eftir kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar um starfið eru veittar á bæjarskrifstofu í síma 4308500 eða á netfangið grundarfjordur@grundarfjordur.is

Umsókn skal fylgja ferilsskrá og kynningarbréf, þar sem umsækjandi gerir grein fyrir reynslu sinni og hæfni í starfið.

 

Sækja um starfið

Umsóknarfrestur er til og með 5. maí 2024