Fram kemur á mbl.is í dag að Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hafi gefið út reglugerð þar sem hámarksafli í þorski er aukinn um 30 þúsund tonn. Heildaraflamark verður því 160 þúsund tonn í stað 130 þúsund tonna.

Í tilkynningu frá sjávarútvegsráðuneytinu segir, að með þessari ákvörðun sé stefnt að nokkru hægari uppbyggingu viðmiðunarstofns og  hrygningarstofns en áður hafði verið áformað.

„Þessi ákvörðun er tekin í ljósi þeirra efnahagserfiðleika sem þjóðarbúið á við að etja og með hliðsjón af jákvæðari vísbendingum um stöðu þorskstofnsins sem fram komu í stofnmælingu botnfiska sl. haust. Í þeirri mælingu kom fram að heildarvísitala þorsks væri mun hærri en undanfarin ár.

Jafnframt er gert ráð fyrir að á næsta fiskveiðiári verði heildaraflamark í þorski eigi lægra en 160 þúsund tonn.


Þótt uppbygging viðmiðunar- og hrygningarstofn þorsks verði hægari en fyrirhugað var, er þessi ákvörðun í samræmi við yfirlýst markmið um sjálfbærar veiðar á þorski sem og öðrum nytjastofnum hér við land," segir í tilkynningu ráðuneytisins.

 

Frétt tekin af mbl.is