Grundarfjarðarbær býður til árlegrar þrettándabrennu laugardaginn 6. janúar kl 17:00 í Hrafnkelsstaðabotni í Kolgrafafirði. Flugeldasýning verður í boði björgunarsveitarinnar Klakks. Álfar munu sveima um svæðið og Foreldrafélag Grunnskóla Grundarfjarðar býður upp á heitt súkkulaði.

Mætum öll og kveðjum jólin saman í Kolgrafafirði!