Í gær var loksins kveikt í þrettándabrennunni en veður hefur verið óhagstætt undanfarna daga.

 

Nokkrir tugir manna fylgdust með brennunni en engum sögum fer hins vegar af álfum. Sennilegt þykir að margir þeirra séu uppteknir við að koma sér fyrir í nýjum heimkynnum eftir flutninga um áramótin.