Klukkan 18.30:

Gamanið hefst klukkan 18.30 við Netaverkstæði G.Run þar sem við rifjum upp vikivakadans og söng, heyrum jafnvel eina sögu.

 

Klukkan 19.00:

Göngum með kyndla fylktu liði frá Netaverkstæðinu um klukkan 19.00 að bílastæðinu við Grunnskóla Grundarfjarðar. Þar taka á móti okkur álfakonungur og -drotting. Syngjum og dönsum saman. 

 

Fólk er hvatt til að koma með blys eða kyndil, vera í búning við hæfi og taka með sér heit kakó á brúsa og bolla með.

 

Virkjum dans og söngvöðva, skemmtum okkur saman