Þriðja og síðasta héraðsmót HSH í fótbolta var haldið í Stykkishólmi á sunnudaginn. 7. og 6. flokkur byrjuðu að spila og fengu allir keppendur viðurkenningarpening fyrir þátttökuna. Hjá 5.,4. og 3. flokki er keppt um sæti og var árangur UMFG glæsilegur héraðsmeistarar í öllum flokkunum.

Hér er mynd af liði 3. flokks.

Elvar þjálfari, Steinar,Erling,Þorsteinn,Arnar Dóri,Heimir,Egill og Ingólfur