Í morgun kom annað skemmtiferðaskip sumarsins til Grundarfjarðar. Var það MS Albatros sem er 205 metrar að lengd og 28.518 brúttótonn. Um borð voru 940 farþegar. Þessa stundina eru á milli 6 og 7 hundruð þeirra á ferð með rútum umhverfis Snæfellsjökul en hluti hópsins röltir um Grundarfjörð í einstakri veðurblíðu. Skipið fer frá Grundarfirði síðdegis í dag.

Frétt á heimasíðu Skessuhorns 20. júní 2008.