- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Framundan eru framkvæmdir við Norðurgarð sem felast í að færa út grjótvörn og stækka „krikann" upp við Norðurgarð, til að rýma fyrir aðkomu á landi, að og frá Norðurgarði. Þetta er meginframkvæmd hafnarinnar í ár og er hún kostuð af hafnarsjóði Grundarfjarðarhafnar með þátttöku ríkisins, á grunni samgönguáætlunar.
Verkið var boðið út á vef Vegagerðarinnar og bárust fjögur tilboð sem opnuð voru 24. febrúar sl. Að lokinni yfirferð tilboða lagði Vegagerðin til að samið yrði við lægstbjóðanda, sem var Flakkarinn ehf. frá Brjánslæk. Tilboð hans var um 23 millj. kr. sem er rétt um 80% af kostnaðaráætlun verksins.
Gert er ráð fyrir framkvæmdinni í Aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar 2019-2039, en breyting var gerð á aðalskipulaginu 2023. Þar er sérstaklega gert ráð fyrir stækkun landfyllingar í kverkinni við upphaf Norðurgarðs, um allt að 500 m2. Tilgangurinn er að skapa meira rými fyrir umferðarleiðir á landi og að auka umferðaröryggi, eins og sagði í greinargerð með skipulagsbreytingunni. Þegar framkvæmdinni lýkur verður hægt að nýta meira rými fyrir akstursleiðir og víkka götuna í beygjunni að/frá Norðurgarði. Á móti er reiknað með að "færa" afþreyingarsvæðið þar sem nú eru bekkir og fánastangir, á hellulögðu svæði, yfir á nýju fyllinguna.
Skipulagsfulltrúi gaf fyrr í vikunni út framkvæmdaleyfi verksins í samræmi við skipulag svæðisins, skv. 13. gr. skipulagslaga 123/2010 sbr. 2. gr.b. í viðauka II samþykkt um stjórn Grundarfjarðarbæjar.
Framkvæmdin gerir ráð fyrir um 3500 m3 uppúrtekt og endurröðun á grjóti og 3300 m3 landfyllingu. Efnið sem notað er í landfyllinguna er brotið efni sem geymt er á iðnaðarsvæðinu vestan Kvernár. Áætlaður framkvæmdatími er frá 1. apríl til 1. júní 2026.
Hluti framkvæmdarinnar er einnig að bæta við annarri flotbryggju, milli Norðurgarðs og núverandi flotbryggju, sem einkum er notuð fyrir farþega léttabáta af skemmtiferðaskipum, skútur og önnur minni fley. Tilboði Köfunarþjónustunnar ehf. í nýja flotbryggju var tekið og verður hún sett upp síðar á árinu.