Mynd: Rarik.is
Mynd: Rarik.is

Mánudaginn 28. september mun Landsnet fara í viðhaldsvinnu á Vegamótalínu frá kl. 11:00-18:00. Ekki er búist við rafmagnsleysi vegna þessarar framkvæmdar heldur verður keyrt á varaaflsvélum frá Rarik og Landsneti og virkjunum á svæðinu til að koma rafmagni til viðskiptavina. Rarik vill þó fara þess á leit við íbúa og fyrirtæki á svæðinu að fara sparlega með rafmagn meðan á þessari aðgerð stendur þar sem miklar sveiflur í notkun raforku geta gert slíka keyrslu erfiðari og valdið truflunum.

 

Nokkur ráð um hvernig hægt er að fara sparlega með rafmagn á þessum tíma:

  • Bíðum með að setja rafbíla í hleðslu
  • Slökkvum á rafmagnsheitapottum
  • Sleppum notkun þvottavéla og þurrkara
  • Hægeldum mat eða eldum hann í smærri tækjum (ekki örbylgjuofninum samt)
  • Lækkum hitastig í rafkyntu húsnæði um 1-2°C
  • Slökkvum á rafmagnstækjum og ljósum sem ekki er nauðsynlegt að hafa í gangi