Menningar- og tómstundanefnd Grundarfjarðarbæjar hefur ákveðið að veita viðurkenninguna Helgrindur í ár. Viðurkenningin hefur verið veitt til þeirra sem þótt hafa skara fram úr í ástundun og/eða störfum að menningarmálum í Grundarfirði.  Viðurkenningin verður veitt á Rökkurdögum sem haldnir verða dagana 7. - 14. nóvember.

Nú auglýsir nefndin eftir tilnefningum á einstaklingum og/eða félagasamtökum til að taka við Helgrindum ársins 2013.

Tilnefningum skal skila til bæjarskrifstofu Grundarfjarðar, Grundargötu 30, 350 Grundarfjörður,  eða með  tölvupósti á grundarfjordur@grundarfjordur.is

Skilafrestur er til 1. nóvember næstkomandi.