Ljósmynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Ljósmynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Umhverfisviðurkenningar Grundarfjarðarbæjar 2026

 

Grundarfjarðarbær óskar eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga sveitarfélagsins árið 2026. Er þetta í fyrsta skipti sem viðurkenningarnar eru veittar. Markmiðið er að hvetja til umhirðu og fegrunar í kringum íbúðarhús og atvinnustarfsemi. 

Flokkar:

  • Heimili ársins 2026 - Snyrtilegasta hús og garður
  • Prýði atvinnulífsins 2026 - Snyrtileg atvinnustarfsemi

Hver getur tilnefnt? 
Allir íbúar sveitarfélagsins geta tilnefnt einstaklinga eða fyrirtæki í annan hvorn flokk eða báða.  

Hvernig er tilnefning send inn? 
Hægt er að tilnefna með því að senda á netfang Grundarfjarðarbæjar grundarfjordur@grundarfjordur.is eða skriflega með bréfi stílað á Skipulags- og umhverfisnefnd.

Tilnefningarfrestur er til og með föstudeginum 31. júlí 2026. Skipulags- og umhverfisnefnd mun í kjölfarið fara yfir allar innsendar tilnefningar, fara í vettvangsferð og velja verðlaunahafa. Niðurstaða verður lögð fyrir bæjarráð/bæjarstjórn eigi síðar en 14. ágúst 2026. 

Afhending viðurkenninga
Afhent verður veðurþolið skilti eða veggmerking sem hengd verður á sjáanlegum stað við hús eða atvinnustarfsemi í samráði við verðlaunahafa.