- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Starfsmaður í íþróttahús/sundlaug
Grundarfjarðarbær auglýsir laust starf sundlaugarvarðar/baðvarðar í íþróttahúsi og sundlaug Grundarfjarðar.
Unnið er á vöktum á opnunartíma sundlaugar. Frá september er vinnutími alla jafna frá 15:50 til 21:30 virka daga og frá 12:50 til ca. 18:00 á laugardögum. Í ágústmánuði er vaktavinna og hlaupandi vaktir, einnig unnið á sunnudögum. Um tímabundna ráðningu er að ræða, frá byrjun ágúst 2025 til 31.05.2026.
Starfssvið:
Leitað er að umsækjendum óháð kyni, en umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri og geta staðist þolpróf/hæfnispróf sundlaugarvarða. Aðrar hæfniskröfur eru:
Vinsamlegast athugið að Grundarfjarðarbær áskilur sér rétt til að fara fram á sakavottorð umsækjenda, í samræmi við lög.
Laun og starfskjör fara eftir kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til og með 18. júlí nk.
Það er fjör í sundlauginni. Þangað koma íbúar á öllum aldri og gestir, bæði innlendir og erlendir. Við eigum ekki stærstu sundlaug landsins, en hún er notaleg og með fallegustu fjallasýnina - að ógleymdu því að við erum hætt að kynda hana með olíu! Svo líður öllum betur þegar umhverfið er hreint og þegar vel er hugsað um öryggi gestanna.
Hér má lesa nánar og skoða myndir frá sundlauginni.
Störfin heyra undir íþrótta- og tómstundafulltrúa. Upplýsingar í síma 430-8500 eða grundarfjordur@grundarfjordur.is