Stórsveit Samma mætir til Grundarfjarðar og heldur tónleika í sal framhaldsskólans á fimmtudagskvöld. Samúel Samúelsson, kenndur við Jagúar, er stjórnandi þessarar sveitar sem hefur á að skipa 20 mjög svo færum hljóðfæraleikurum og leika þeir lög úr ýmsum áttum.

 

Tónleikarnir hefjast 20:00 og kostar aðeins 2000 kr. inn en framhaldsskólanemar og grunnskólanemar fá miðann á 1500 kr.