Innritun fyrir skólaárið 2013-2014 fer fram dagana 02. - 17.maí 2013.

 

Nemendur Tónlistarskólans og Grunnskólans hafa nú þegar fengið afhent umsóknareyðublöð en einnig má nálgast eyðublöðin í Tónlistarskólanum og hjá ritara Grunnskólans.

Vinsamlegast skilið umsóknum til bekkjakennara í Grunnskóla eða í Tónlistarskólann fyrir 17.maí n.k.

 

Vakin er athygli á því að nemendur sem eru að klára 2.bekk grunnskólans nú í vor eiga kost á því að hefja hljóðfæranám næsta haust.

 

Nánari upplýsingar eru veittar í Tónlistarskólanum í síma: 430-8560.

Þórður Guðmundsson skólastjóri.