- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Föstudaginn 4. september næstkomandi verður treyjudagurinn haldinn í fyrsta skipti á Íslandi. Börn með krabbamein standa að deginum og er markmiðið að einstaklingar og hópar klæðist sinni uppáhalds treyju og sýni þannig börnum með krabbamein stuðning.
Treyjudagurinn var fyrst haldinn á Englandi árið 2013 en dagurinn eins og við þekkjum hann í dag byggist á danskri fyrirmynd Børne Cancer Fonden frá árinu 2019. Fljótlega bættust Noregur og Svíþjóð í hópinn og á örfáum árum hefur átakið sameinað þúsundir einstaklinga, fyrirtækja og íþróttafélaga í stuðningi við börn með krabbamein.
Fyrirtæki, stofnanir, íþróttafélög og einstaklingar eru hvattir til þess að taka þátt og mæta í treyjum, taka hópmynd og deila á samfélagsmiðlum með myllumerkinu #treyjudagurinn.
Frekari upplýsingar er að finna á treyjudagur.is