Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninganna sem fram fara laugardaginn 27. maí n.k. rann út á hádegi laugardaginn 6. maí sl. Kjörstjórn veitti framboðslistum móttöku á bæjarskrifstofunni milli kl. 11 og 12 þann dag. Tvö framboð skiluðu inn framboðslistum til sveitarstjórnarkosninga í Grundarfirði í vor. Það voru D-listi Sjálfstæðisfélags Grundarfjarðar og L-listi Samstöðu – lista fólksins. Meðfylgjandi myndir voru teknar við afhendingu framboðslistanna.

D-listinn afhendir kjörstjórn sinn lista
 

L-listinn afhendir kjörstjórn sinn framboðslista