Efri röð: Diddi, Eygló, Addi, Heimir, Sigríður, Gæi, Guðni og Hafsteinn

Neðri röð: Nicky, Eydís, Unnur Birna, Gísli og Geiri

 

Gríðarleg stemming var við vígslu sparkvallar í gær þegar stjórn UMFG og bæjarstjórn Grundarfjarðar öttu kappi saman. Úrslit urðu þannig að UMFG sigraði með sex mörkum gegn fimm.

Leikurinn var í járnum allan leiktímann og því mikil spenna sem ríkti meðal áhorfenda. Að leiktíma loknum var jafnt, 5-5, og var leikurinn framlengdur þar til gullmark yrði skorað. Um dómgæslu í leiknum sá Hafsteinn Garðarsson.

Grundfirðingum eru færðar hamingjuóskir með glæsilegan sparkvöll!