Mánudaginn 27. des og þriðjudaginn 28.des fóru 4.fl kv og 3.fl kv á Jólamót Kópavogs. Mótið hjá 4.fl B byrjaði snemma á mánudagsmorguninn og þurfti því að leggja af stað frá Grundarfiðið kl 6 um morguninn. Stelpurnar í B liðinu spiluðu til hádegis og stóðu sig með ágætum og enduðu með 4 stig eftir keppnina.

A liði spilaði svo eftir hádegi og tókst að standa vel í Reykjarvíkur liðunum þó svo þær hafi ekki náð að vinna leik en þær töpuðu með svona 1 til 2 mörkum. 3.fl kv keppti svo á þriðjudeginum þær börðust vel en það er svo einkennilegt með þær að boltinn vill ekki í mark andstæðingana. Þær náðu þó að vinna FH 2-5 og enduðu í 7. sæti með 3 stig.

Mótið var haldið á stórum gervigrasvelli í Fífunni og hafa stelpurnar varla spilað á svona stórum velli áður, ætli við hefðum ekki komið vellinum í íþróttahúsinu okkar svona 2 -3 á þennan völl. Mörkin voru líka mun stærri en við æfum á hjá 4.fl voru þær að spila á helmingi stærri mörk en eru í okkar húsi og í 3.fl voru mörkin 3 sinnum stærri.

Markmaðurinn okkar í 3. fl var að hugsa um að leggja það til við mótstjórn að hún fengi að vera í minna marki þar sem hún væri svo smávaxin að hún passaði engan vegin í svona stórt mark. En þátt fyrir að við höfum ekki komið heim með nein verðlaun var þetta mjög góð æfing fyrir íslandsmótin sem fara fram nú í janúar. Dagsetningar á íslandsmótunum eru komnar í atburðadagatalið.