Umhverfisrölt með bæjarbúum

Bæjarstjórn ásamt skipulags- og umhverfisnefnd Grundarfjarðarbæjar og byggingarfulltrúa boða til seinni hluta umhverfisrölts, þar sem fulltrúar bæjarstjórnar, bæjarstjóri, skipulags- og umhverfisnefnd og byggingarfulltrúi, munu ganga með bæjarbúum um svæði í bænum og ræða það sem betur má fara ásamt því að skoða lausnir til úrbóta.

 

Umhverfisrölt verður sem hér segir:

Bláa hverfið

Þriðjudag 9. júní, kl. 19.30

Sögumiðstöðin

Gula hverfið

Þriðjudag 9. júní, kl. 20.30

Dvalarheimilið Fellaskjól

 

Ábendingar og tillögur má einnig senda í tölvupósti til skipulags- og byggingafulltrúa á netfangið bygg@grundarfjordur.is eða í netfang bæjarins grundarfjordur@grundarfjordur.is  

Bæjarbúar – mætum og látum okkur varða um umhverfi okkar. 
Tökum þátt!

Skipulags- og umhverfisnefnd og bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar