Mynd: Olga Sædís Einarsdóttir, 2. sæti ljósmyndasamkeppni 2020
Mynd: Olga Sædís Einarsdóttir, 2. sæti ljósmyndasamkeppni 2020

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Umhverfisrölt með bæjarbúum

Eins og fyrri ár boðar bæjarstjórn, ásamt skipulags- og umhverfisnefnd Grundarfjarðarbæjar, til umhverfisrölts, þar sem fulltrúar úr bæjarstjórn, skipulags- og umhverfisnefnd, bæjarstjóri og byggingarfulltrúi, munu ganga með bæjarbúum um svæði í bænum og ræða það sem betur má fara ásamt því að skoða lausnir til úrbóta.

Umhverfisrölt verður sem hér segir:

Ábendingum og tillögum má einnig koma til skila með því að senda tölvupóst á grundarfjordur@grundarfjordur.is.

Einnig bendum við á hnappinn, Umhverfið mitt á bæjarvefnum, þar sem hægt er að senda inn ábendingar ásamt myndum.

Bæjarbúar – mætum og látum okkur varða um umhverfi okkar. 

Tökum þátt!

Skipulags- og umhverfisnefnd og bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar