Ljósmyndari - Ragnheiður Kristjánsdóttir, úr ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðar 2018
Ljósmyndari - Ragnheiður Kristjánsdóttir, úr ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðar 2018

Skipulags- og umhverfisnefnd ásamt bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar boðar til umhverfisrölts með íbúum og öðrum hagsmunaaðilum. Þar munu fulltrúar bæjarstjórnar og skipulags- og umhverfisnefndar ganga með bæjarbúum um svæði í bænum, fara yfir umhverfisframkvæmdir, ræða það sem betur má fara og skoða lausnir til úrbóta.

Umhverfisröltið er góður vettvangur til þess að koma hugmyndum sínum, áhyggjum og ábendingum á framfæri og vera þátttakandi í mótun á verkefnum sem gætu skapast við létt spjall og skoðun á umhverfinu.

Umhverfisrölt verður sem hér segir:

 

Til stendur að fara einnig í umhverfisrölt um dreifbýli en það verður auglýst síðar.

Ábendingum og tillögum má einnig koma til skila með því að senda tölvupóst á grundarfjordur@grundarfjordur.is

Einnig bendum við á hnappinn, Umhverfið mitt - lengst til hægri á forsíðunni á bæjarvefnum, þar sem hægt er að senda inn ábendingar ásamt myndum.

Bæjarbúar – mætum og látum okkur varða um umhverfi okkar.

Tökum þátt!

Skipulags- og umhverfisnefnd og bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar