Bæjarstjórn og umhverfisnefnd Grundarfjarðarbæjar ætla nú að standa fyrir veitingu verðlauna/viðurkenninga fyrir snyrtilega umgengni og umhirðu lóða og mannvirkja í Grundarfjarðarbæ, bæði í þéttbýli og dreifbýli. Veittar verða viðurkenningar/verðlaun fyrir lóðir og mannvirki í eftirfarandi flokkum:

 

1.     Gata í þéttbýlinu.

2.     Býli í dreifbýlinu.

3.     Frístundalóð og frístundahús.

4.     Fyrirtæki.

5.     Lóð og hús í þéttbýlinu.

 

Auglýst er eftir tilnefningum og/eða ábendingum frá íbúum og þurfa þær að berast á bæjarskrifstofuna í síðasta lagi 20. júlí 2007.  Senda má tilnefningar á netfangið grundarfjordur@grundarfjordur.is 

Viðurkenningarnar/verðlaunin verða kunngerð og veitt á bæjarhátíðinni “Á góðri stund”.

 

Umhverfisnefnd Grundarfjarðarbæjar