Umhverfisviðurkenning Grundarfjarðarbæjar 2026

 

Bæjarráð samþykkti á 657. fundi sínum þann 23. júní sl. að veittar yrðu umhverfisviðurkenningar og fól bæjarstjóra umsjón með verkinu. Í kjölfarið var birt frétt á heimasíðu Grundarfjarðarbæjar þar sem óskað var eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga í tveimur flokkum; Heimili ársins og Prýði atvinnulífsins. Skipulags- og umhverfisnefnd fór í gegnum innsendar tilnefningar.

 

Heimili ársins 2026 - Fossahlíð 6 

Umhverfisviðurkenning Grundarfjarðarbæjar fyrir Heimili ársins hlýtur Jón Snorrason, Fossahlíð 6.

Við valið var hoft til snyrtileika lóðar, umhirðu húsnæðis og þess metnaðar sem einkennir allt umhverfið. Jón og eiginkona hans Selma Friðfinnsdóttir lögðu um áraatugaskeið mikla rækt við hús og lóð og byggðu upp einstaklega fallegan garð sem ber glöggt vitni um alúð, natni og ómælda vinnu. Garðurinn hefur þróast og dafnað í gegnum árin og er í dag sannkölluð prýði fyrir hverfið og bæinn allan. 

Að baki þessu fallega umhverfi liggur gríðaleg vinna sem staðið hefur yfir um árabil. Með þrautseigju, umhyggju og ást á staðnum hafa þau skapað heild sem vekur athygli fyrir fegurð, snyrtimennsku og þann metnað sem lagðir hefur verið í hvert smáatriði.

Grundarfjarðarbær þakkar fyrir það framlag til fegrunar og bættu umhverfi sem þar hefur verið sýnt í verki til margra ára og minnir um leið á það dýrmæta starf sem hjónin unnu saman að uppbyggingu þessa fallega heimilis. 

 

Prýði atvinnulífsins 2026 - Bjargarsteinn

Umhverfisviðurkenning Grundarfjarðarbæjar fyrir Prýði atvinnulífsins 2026 hlýtur Bjargarsteinn. 

Um árabil var þar rekið eitt þekktasta og virtasta veitingahús landsins sem margir bæjarbúar og gestir minnast með hlýju. Í dag er í húsinu rekin gistiþjónusta, en sá metnaður sem einkennt hefur staðinn frá upphafi er enn til staðar. 

Húsnæðið og umhverfi þess bera vott um einstaklega góða umhirðu og natni. Eigendur hafa lagt miikla vinnu í viðhald, fegrun og uppbyggingu staðarins í gegnum árin og skapað umhverfi sem er bæði hlýlegt og aðlaðandi. 

Grundarfjarðarbær þakkar eigendum fyrir metnað þeirra og umhyggju fyrir staðnum í gegnum árin. Bjargarsteinn hefur um langt skeið verið bænum til sóma og er vel að því kominn að vera Prýði atvinnulífsins 2026.