Eins og vonandi allir vita hafa sveitarfélögin á Snæfellsnesi státað af umhverfisvottun á starfsemi sinni frá árinu 2008. Til þess að viðhalda slíkri vottun er krafist vöktunar á auðlindanýtingu og ýmsum umhverfisþáttum auk stöðugra úrbóta í umhverfis- og samfélagsmálum.Árlega er starfsemin tekin út af óháðum aðila vegna endurnýjunar á vottun.

Rétt fyrir jólin kom á svæðið úttektaraðili, Haukur Haraldsson frá Almennu verkfræðistofunni, til þess að fara yfir vinnu síðasta árs og meta svæðið með mögulega endurnýjun á vottun í huga.

Þann 16. janúar sendu svo EarthCheck vottunarsamtökin tilkynningu um að vottun hefði náðst fyrir árið 2012," segir Theódóra Matthíasdóttir umhverfisfulltrúi Snæfellsness í tilkynningu sem hún hefur sent fjölmiðlum.

Nú skartar Snæfellsnes því nýju merki fyrir árið 2012. "Með þessu hefur grunnur verkefnisins verið treystur enn frekar. Framtíðarsýn verkefnisins er sterk hvað varðar fjölbreytt verkefni, kynningarstarf og mögulega útvíkkum til fleiri sveitarfélaga, meira um það síðar," segir Theódóra.