Umhyggjudagurinn 2023

 

Vegna Umhyggjudagsins verður frítt í sund í sundlaug Grundarfjarðar laugardaginn 26. ágúst frá kl. 14:00-16:00.
Glaðningur fyrir alla krakka sem mæta í sund, á meðan birgðir endast.

Hvað er Umhyggja?Umhyggja-icon-blatt-1

Umhyggja er félag sem vinnur að bættum hag langveikra barna og fjölskyldna þeirra. Umhyggja býður m.a. upp á endurgjaldslausa sálfræðiþjónustu og lögfræðiráðgjöf fyrir foreldra, niðurgreidd námskeið fyrir systkini, fjárstyrki, orlofshús, aðstoð við réttindabaráttu ásamt ráðgjöf til fjölskyldna og fagaðila.

Umhyggja reiðir sig alfarið á styrki frá einstaklingum og fyrirtækjum í samfélaginu. Með því að styrkja Umhyggju gerir þú félaginu kleift að styðja við fjölskyldur langveikra barna.

Þú getur gerst Umhyggjusamur einstaklingur með mánaðarlegum framlögum til Umhyggju með því að fara inn á umhyggja.is.