- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Laust er til umsóknar fullt starf í Þjónustumiðstöð Grundarfjarðarbæjar. Starfið felst einkum í umsjón fasteigna og annarra mannvirkja bæjarins. Leitað er að áhugasömum aðila með ríka þjónustulund og metnað til að skila góðu starfi.
Um er að ræða 100% starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 21. september 2026.
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.
Með umsókn skal fylgja ferilskrá ásamt stuttu kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir reynslu og áhuga á starfinu.
Nánari upplýsingar um starfið veitir:
Örvar Þór Örlygsson
Verkefnisstjóri tæknimála og framkvæmda
Sími: 430 8500
Netfang: taeknifr@grundarfjordur.is
Sækja skal um starfið á alfred.is.