Ráðið hefur verið í starf umsjónarmanns samkomuhússins sem auglýst var laust til umsóknar í janúar. Ráðin voru Eygló B. Jónsdóttir og Arnar Guðlaugsson sem deila starfinu. Þau hafa nú þegar tekið til starfa og sjá um bókanir í húsið sem hefur verið á bæjarskrifstofunni um nokkra hríð. Síminn hjá þeim er 863 0185.

Alls bárust níu umsóknir um starfið og er umsækjendum þakkaður áhuginn sem þeir sýndu á starfinu.

 

Skrifstofustjóri