Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir eftir umsóknum um búsetu í þjónustuíbúðakjarna fólks með fötlun að Ólafsbraut 62 – 64 í Ólafsvík. Um er að ræða 2 einstaklingsíbúðir með stuðningsþjónustu sem felur í sér aðstoð og leiðsögn til sjálfstæðrar búsetu í eigin íbúð.

Umsækjendur uppfylli neðangreind skilyrði:

  • Eigi lögheimili á Snæfellsnesi
  • Sé 18 ára eða eldri
  • Sé virkur notandi dagþjónustustöðva FSS og/eða í atvinnu með stuðningi
  • Hafi metna þjónustuþörf í 6. flokki SIS eða hærri
  • Að staðfest fötlunargreining Greiningar- og ráðgjafarstöðvar liggi fyrir

Umsóknir berist Jóni Hauki Hilmarssyni, forstöðumanni og fagstjóra þjónustu við fólk með fötlun, í þjónustuíbúðakjarnann eða á netfangið jonhaukur@fssf.is.

Umsóknareyðublað má finna á heimasíðunni www.fssf.is

Umsóknarfrestur er til 20. janúar 2023.

Hægt er að panta tíma til skoðunar hjá forstöðumanni í síma 430 7812.