Fimmtudaginn 7. apríl var haldin undankeppni fyrir Stóru upplestrarkeppnina í 7. bekk. Hver nemandi las eina blaðsíðu úr bókinni „Ertu Guð? Afi“, eftir Þorgrím Þráinsson og eitt ljóð.

 

Í dómnefnd sátu Sigríður Hjálmarsdóttir – menningar- og markaðsfulltrúi, Unnur Birna Þórhallsdóttir – kennari og Herdís Björnsdóttir – skólaritari.

 

Nemendur stóðu sig með stakri prýði og reyndist dómnefnd erfitt að velja aðeins þrjá fulltrúa sem munu taka þátt fyrir hönd skólans. En það voru þau Breki Þór, Gunnar Jökull og Ragnheiður sem komust áfram og munu taka þátt í Stóru upplestrarkeppninni sem fer fram í Grundarfjarðarkirkju, fimmtudaginn 14. apríl nk. Til vara verður Baldvin Þór.

 
Fleiri myndir inni á heimasíðu skólans grundo.is.