Nú er komið að því að fólk þarf að ákveða sig, hvort það ætlar á Landsmótið á Höfn 3.-6. ágúst  (11-18 ára)

Pæjumótið á Siglufirði 10.-12. ágúst (6. og 7. fl kv) og Króksmótið á Sauðárkróki 11.-12. ágúst (6. og 7. fl ka). Þeir sem ætla á Unglingalandsmótið þurfa að skrá sig fyrir 16. júlí ætli þeir að fá HSH jakka. Skráning fer fram á hsh@hsh.is Þeir sem ætla á Pæju og Króksmót þurfa að skrá sig fyrir 22.júlí á netfangið eygloj@simnet.is

Og þeir sem ætla að panta sér Snæfellsnes galla fyrir þessi mót þurfa að gera það hið fyrsta og í síðasta lagi föstudaginn 13. júlí til að vera öruggir að fá þá fyrir verslunarmannahelgi.  

 Við sem erum að vinna í þessu förum snemma á landsmótið og mörg okkar fara svo norður fyrir og fara á Siglufjörð og Sauðárkrók þannig að við verðum ekki heima á milli þessara móta til að redda neinu, þannig að allt þarf að vera klárt fyrir mánaðarmót júlí - ágúst.