Hefur þú áhuga á að ferðast, kynnast nýju fólki og upplifa öðruvísi menningu? Hvernig væri að skella sér til Frakklands og upplifa menningu Saint Julien en Beauchêne og taka þátt í skemmtilegu verkefni?

SEEDS mun senda 5 Íslendinga á aldrinum 18-25 ára til þátttöku í ungmennaskiptunum „Melting Potes: An Artistic Adventure About Cultural Diversity“ sem mun fara fram í bænum Saint Julien en Beauchêne í Hautes-Alpes, Frakklandi. Athugið að a.m.k. einn meðlimur íslenska hópsins má vera á aldrinum 25-30 ára.

Hefur þú áhuga á að taka þátt?

Hvenær: 5. – 26. ágúst 2013

Umsóknarfrestur: Til miðnættis mánudaginn 22. júlí 2013

Þema og markmið ungmennaskiptanna: SEEDS tekur nú þátt í ungmennaskiptunum Melting Potes annað árið í röð en óhætt er að segja að verkefnið hafi slegið í gegn í fyrra. Í verkefninu mætast 20 ungir einstaklingar frá hinum ýmsu Evrópulöndum og vinna saman að fjölbreyttum verkefnum sem tengjast meðal annars fjölmenningu, listsköpun og umhverfisvernd. Í verkefninu munu þátttakendur fá tækifæri til að dýpka þekkingu sína á ólíkum menningarheimum innan Evrópu með þátttöku í umræðum og vinnustofum þar sem þeim gefst meðal annars tækifæri til að skapa sín eigin verk sem endurspegla þema ungmennaskiptanna. Í vinnust ofunum verður einnig fjallað um sjálfboða-liðastarfi og hvernig hægt er að vekja áhuga ungs fólks á virkri þátttöku í ungmennastarfi.

Þátttakendur munu einnig vinna saman að listrænu verkefni undir fyrirsögninni „Gerum það saman“ eða „Let’s do it together“ sem vísar til fjölþjóðlegs yfirbragðs verkefnisins. Í ár hefur verið ákveðið að leggja áherslu á sjónræna list (e. visual arts) og endurvinnslu en þátttakendur munu vinna saman að listrænni sköpun á svokölluðu „Land Art“ verki þar sem notast verður við endurvinnanlegan efnivið.

Undir lok ungmennaskiptanna mun fara fram hátíð þar sem þátttakendur munu meðal annars sýna verk sín en þeir munu taka virkan þátt í skipulagningu hátíðarinnar og hátíðarhöldunum sjálfum. Áhugasamir þátttakendur með bakgrunn í tónlist, dansi, leiklist eða öðrum tegundum sköpunar munu fá tækifæri til að koma hæfileikum sínum á framfæri á hátíðinni.

Ungmennaskiptin munu fara fram á ensku og þátttakendur þurfa að hafa gott vald á talaðri ensku.

Námskeiðið er styrkt af ungmennaáætlun Evrópusambandsins og því munu þátttaknedur fá allt að 70% endurgreiðslu vegna ferðakostnaðar auk þess sem þeim er séð fyrir fæði og húsnæði á meðan að verkefninu stendur.

Allar nánari upplýsingar auk umsóknareyðublaðs er að finna á:

http://seeds.is/files/2013/SEEDS-France-Melting-Potes.pdf
Tekið er fyrir umsóknum og fyrirspurnum á outgoing@seeds.is
Frekari upplýsingar veitir Unnur Eyfells: outgoing@seeds.is