Uppbyggingarsjóður er opinn fyrir umsóknir

 

Uppbyggingarsjóður Vesturlands er nú opinn fyrir umsóknir. Sjóðurinn styður fjölbreytt verkefni á sviði menningar, atvinnuþróunnar og nýsköpunar auk þess að veita astofn- og rekstrarstyrki á sviði menningarmála á Vesturlandi. Sjóðurinn er samkeppnissjóður og eru umsóknir metnar út frá þeim markmiðum og áherslum sem koma fram í Sóknaráætlun Vesturlands.

Umsóknarfrestur er til 21. október kl. 14:00 og er sótt um í gegnum umsóknargátt Rannís lík og síðast, sjá hér: Umsóknargátt.

Umsækjendur eru hvattir til að leita aðstoðar hjá ráðgjöfum SSV sem eru boðnir og búnir að veita umsækjendum góð ráð við gerð umsókna. 

Menningarverkefni (verkefnastyrkir og stofn- og rekstrarstyrkir) Sigursteinn Sigurðsson í síma 433-2313 eða 695-8503. Netfang: sigursteinn@ssv.is

Atvinnu og nýsköpunarverkefni:
Ólöf Guðmundsdóttir í síma 898-0247. Netfang: olof@ssv.is
Helga Guðjónsdóttir í síma 895-6707. Netfang: helga@ssv.is
Hrafnhildur Tryggvadóttir í síma 894-2718. Netfang: hrafnhildur@ssv.is

Nánari upplýsingar um Uppbyggingarsjóð er að finna á vef SSV; Uppbyggingarsjóður Vesturlands