Nýnemadagur miðvikudaginn 17. ágúst kl. 10:00.

Þar verður farið yfir helstu þætti skólastarfsins. Þeir nemendur sem eiga fartölvur eru beðnir um að koma með þær. Gert er ráð fyrir að dagskrá nýnemadags ljúki um kl. 14:00. Nemendur í framhaldsdeildinni á Patreksfirði mæta á nýnemadag í deildina á Patreksfirði kl. 10:00.

Rútur á nýnemadag frá Stykkishólmi (íþróttamiðstöð) kl. 09:30, frá Hellissandi (N1) kl. 09:30, frá Rifi kl. 09:33, frá Ólafsvík kl. 09:40. Heimferð frá FSN kl. 14:00.

Stundatöfluafhending/birting verður 17. ágúst kl. 11:00 – 12:30.

Skólasetning og fyrsti kennsludagur á haustönn 2011 er mánudagurinn 22. ágúst kl. 8:30. Að lokinni skólasetningu hefst kennsla samkvæmt stundatöflu.

Töflubreytingar verða 22.-26. ágúst.

Frekari upplýsingar um bókalista, kennda áfanga á haustönn, dagatal haustannar má finna á heimasíðu skólans www.fsn.is

Enn eru nokkur pláss laus fyrir nemendur sem vilja stunda dreifnám frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga.