Nýnemar (nemendur sem útskrifuðust úr 10. bekk grunnskóla nú í vor):

Nýnemar mæta á sérstakan kynningardag – nýnemadag – föstudaginn 17. ágúst kl. 10:00. Þar verður farið yfir helstu þætti skólastarfsins. Þeir nemendur sem eiga fartölvur eru beðnir um að koma með þær. Gert er ráð fyrir að dagskrá nýnemadags ljúki um kl. 14:00.

Rútur á nýnemadag frá Stykkishólmi (íþróttamiðstöð) kl. 09:30, frá Hellissandi (N1) kl. 09:30, frá Rifi kl. 09:33, frá Ólafsvík kl. 09:40. frá Bíldudal 9:30 og Tálknafirði 9:40. Heimferð frá FSN kl. 14:00

Stundatöfluafhending/birting verður 17. ágúst kl. 11:00 – 12:30.

Skólasetning og fyrsti kennsludagur á haustönn 2012 er miðvikudagurinn 22. ágúst kl. 8:30. Að lokinni skólasetningu hefst kennsla samkvæmt stundatöflu.

Töflubreytingar verða 23.-29. ágúst.

Enn eru nokkur pláss laus fyrir nemendur sem vilja stunda nám við Fjölbrautaskóla Snæfellinga.