Uppskeruhátið Ungmennafélags Grundarfjarðar verður haldin fimmtudaginn 16. september klukkan 17:00 í samkomuhúsinu.  Veitt verða verðlaun fyrir mætingar og fleira og er það Landsbankinn sem styrkir uppskeruhátíðina í ár og viljum við þakka fyrir stuðninginn.  Á eftir verða veittar veitingar og vonumst við eftir að sjá sem flesta iðkendur hjá UMFG.

Stjórn Ungmennafélags Grundarfjarðar.