Dagana 23. - 26. apríl verður tekin upp stuttmynd í Grundarfirði, sem er hluti af lokaverkefni Dróma Haukssonar úr Kvikmyndaskóla Íslands.

Vegna þessa verða takmarkanir á umferð frá Grundargötu 72 að Fjölbrautaskóla Snæfellinga, sunnudaginn 24. apríl ca. frá kl. 14-20 og aftur mánudaginn 25. apríl frá kl. 16-22. 

Umferð verður stýrt á meðan tökum stendur, en götunni verður ekki lokað. Hver taka ætti að taka um 2-6 mínútur í hvert sinn og umferð opnuð á milli atriða og undirbúnings til næstu töku. 

Það verða starfsmenn á staðnum að stýra umferð.

Vegfarendum er þökkuð tillitssemin meðan á tökum standa.