- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Sveitarfélög skilgreina markmið um úrgangsminnkun og aukna endurvinnslu í samræmi við lög og stefnu ráðherra. Samkvæmt stefnu ráðherra átti endurvinnsluhlutfall heimilisúrgangs að ná 50% árið 2022 og hækka í áföngum í 55% árið 2025, 60% árið 2030 og 65% árið 2035. Urðun heimilisúrgangs skal minnka í að hámarki 10% árið 2035. Heimilisúrgangur felur í sér matarleifar, umbúðir, pappír, plast, gler og málma, ásamt sambærilegum úrgangi frá smærri starfsemi. Sveitarfélög skulu einnig stefna að því að draga úr úrgangsmyndun, sérstaklega úrgangi sem fer til förgunar eða orkuvinnslu.
Sérsöfnun úrgangs hefur verið í Grundarfirði frá árinu 2011 og gengið vel, eins og myndirnar hér að neðan sýna. Endurvinnsluhlutfall heildarúrgangs í sveitarfélaginu hefur almennt verið á bilinu 40–50% og úrgangur til endurvinnslu frá heimilunum yfirleitt verið rétt undir 50%. Þótt gott endurvinnsluhlutfall frá heimilum sé jákvætt, er stærra verkefni fram undan í samfélaginu sem heild. Í umræðu um endurvinnslu, sérsöfnun og flokkun gleymist oft að ræða sorpmyndun sjálfa – það magn sem til fellur. Mikilvægasta leiðin til að minnka bæði umhverfisáhrif og kostnað vegna sorps er að draga úr innkaupum og þar með sorpmyndun.
Næstu árin mun Grundarfjarðarbær vinna að því að uppfylla markmið sjálfbærnistefnu Snæfellsness með áherslu á úrgangsmál. Sveitarfélagið mun fylgja lögum um aukið endurvinnsluhlutfall og stefna að því að draga úr úrgangsmyndun. Markmiðin fela í sér að auka endurvinnslu heimilisúrgangs í samræmi við stefnu ráðherra, með áföngum sem ná hámarks endurnýtingu árið 2035.
Sjálfbærnistefna Snæfellsness sem uppfyllir bæði lög um loftslagsmál og staðal EarthCheck vegna umhverfisvottunar verður tilbúin á þessu ári, en ásamt henni mun hvert sveitarfélag vera með sína eigin aðgerðaáætlun vegna markmiða í hringrásarhagkerfinu, orkusparnaði- og stjórnun, verndun vistkerfa og landnotkun og samgöngum.
Smellið á myndirnar til að sjá frekari útskýringar.