Grundarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í verkið Grundarfjarðarbær, íþróttahús - utanhússframkvæmdir. Verkið felst m.a. í að rífa núverandi múrklæðningu af útveggjum íþróttahúss og klæða að nýju, endurnýja hluta glugga, hreinsa þök og endurmála og lagfæra þakkant.  

Verkið er tvískipt og skal vinna í áföngum sem skipt er á árin 2026 og 2027, þar sem byrjað verður á framkvæmdum við norður- og austurhlið íþróttahúss vor 2026, auk þess sem framkvæmd við austurhlið tengigangs (milli íþróttahúss og grunnskóla) fylgir þeim áfanga. Síðari áfangi felst í í framkvæmdum á suður- og vesturhlið vor/sumar 2027. Heimilt er þó að vinna báða verkhluta á árinu 2026, sbr. nánari skilmála.

Helstu magntölur verks eru :

- Rif múrkerfis: 536m²
- Klæðning útveggja: 648m²
- Gluggar: 25 stk.
- Endurmálun á þökum: 780m²

Útboðsgögn eru aðgengileg frá og með föstudeginum 17. apríl  2026 kl. 14:00 á vefslóðinni https://vso.ajoursystem.net/

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum framangreindan útboðsvef. 

Tilboðum skal skila rafrænt gegnum útboðskerfið https://vso.ajoursystem.net/, eigi síðar en miðviku­daginn 6. maí 2026 kl. 14:00.

Enginn formlegur opnunarfundur verður haldinn, en upplýsingar um niðurstöðu opnunar verða birtar bjóðendum eftir opnun tilboða.