Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

 

 

Útboðsauglýsing - Grjótvörn við Norðurgarð.

 

Vegagerðin hefur auglýst eftirfarandi útboð: 

Hafnarsjóður Grundarfjarðarbæjar óskar eftir tilboðum í verkið „Grundarfjörður – Grjótvörn við Norðurgarð 2026“. Þar á að færa út grjótvörn og stækka „krikann" upp við Norðurgarð, til að rýma fyrir aðkomu á landi, að og frá Norðurgarði. 

Helstu magntölur:

  • Uppúrtekt og endurröðun grjótvörn, um 3.500 m³ af grjóti og sprengdum kjarna.
  • Landfylling og yfirborðsfrágangur um 3.300 m3.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. júní 2026.

Útboðsgögn eru afhent rafrænt í TendSign útboðskerfinu. Afhending gagnanna er án endurgjalds, frá og með föstudeginum 6. febrúar 2026 og skal tilboði skilað rafrænt í útboðskerfinu TendSign fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 24. febrúar 2026.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu, heildartilboðsupphæð og hvort tilboð sé sett fram sem frávikstilboð.

Sjá einnig útboðsauglýsingu á vef Vegagerðarinnar hér.