Laugardaginn 13. júní sýnir Leikhópurinn Lotta barnaleikritið Rauðhettu í Grundarfirði. Sýnt verður í Þríhyrningnum og hefst sýningin klukkan 11:00. Sýnt er utandyra og er því um að gera að klæða sig eftir veðri og taka með sér teppi til að sitja á og hlýja sér ef kalt er í veðri.

 

Verkið skrifaði Snæbjörn Ragnarsson og er það byggt á klassísku ævintýrunum um Rauðhettu og úlfinn, Hans og Grétu og Grísina þrjá. Sögurnar eru fléttaðar saman á nýstárlegan og skemmtilegan hátt svo úr verður stærðarinnar ævintýr. Snæbjörn hefur einnig samið lög fyrir verkið ásamt bróður sínum Baldri og Gunnari Ben.

Þetta er þriðja sumarið sem Leikhópurinn Lotta tekur sig til og setur upp barnasýningu. Sumarið 2007 var hið sívinsæla verk Torbjörns Egners, Dýrin í Hálsaskógi, sett á svið og í fyrra var það Galdrakarlinn í Oz í nýrri leikgerð Ármanns Guðmundssonar. Þetta er fyrsta heimsókn leikhópsins til Grundarfjarðar.

Miðinn kostar 1.500 krónur fyrir fullorðna og 1.000 krónur fyrir börn. Þetta er því ódýr fjölskylduskemmtun sem enginn má láta framhjá sér fara.

Nánari upplýsingar um sýningarplan má finna  í síma 770-0403 og á heimasíðu hópsins: www.leikhopurinnlotta.is